Algengar spurningar

Er hægt að fá vörurnar útprentaðar?
Allar vörur heimaPRENTS eru afhentar rafrænt og kaupandi sér sjálfur um prentun þeirra. 

Hvenær fæ ég vöruna afhenta?
Vörur berast kaupanda í tölvupósti augnabliki eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

Ég á ekki prentara en vil kaupa vöru, hvað get ég gert?
Þú getur sent vöruna í prentun í næstu prentsmiðju.

Er hægt að breyta vöru eða bæta aðeins við hana?
Oft getum við breytt vöru lítillega að óskum viðskiptavina. Sendu okkur póst á heimaprent.is@gmail.com og segðu okkur hvaða vöru þú vilt breyta og hvernig. Viðbótarþjónusta sem þessi kostar 990 krónur.