Litla ísbúðin mín
Litla ísbúðin mín
Prentanlega ísbúðin er fullkomin viðbót í hlutverka- og ímyndunarleikina.
Ísbúðin hentar börnum á leik- og grunnskólaaldri þar sem hún er hönnuð fyrir bæði læs og ólæs börn.
Það er einfalt að setja ísbúðina upp. Þú einfaldlega prentar út skjalið sem þú færð sent, klippir út og kemur merkingunum fyrir. Ísbúðin er hönnuð til að passa á ikea leikeldhús (Duktig) sem er til á svo mörgum heimilum en þó er alls ekki nauðsynlegt að nota ísbúðina með eldhúsinu.
Það er fjölmargt sem má nota sem ískúlur. Til dæmis leir, samankrumpaðan pappír, dúska og margt fleira.
Ísbúðinni fylgja einnig skemmtilegar myndir til að lita.
Flettu í gegnum galleríið til að fá smá innsýn í Litlu ísbúðina mína. Athugaðu að þetta er rafræn vara.