Um heimaPRENT

heimaPRENT er í eigu Sigrúnar Yrju (með tæknilegri aðstoð frá eiginmanninum). 

Sigrún Yrja hefur síðustu ár miðlað til foreldra og umönnunaraðila barna um mikilægi leiks í gegnum samfélagsmiðla og heimasíðu Leikvitund.is

Samhliða því hefur hún hannað rafrænt efni sem stuðlar að leik og námi barna. Eftir því sem slíkum vörum fjölgaði var ljóst að þær þyrftu sitt eigið rými og þá kviknaði hugmyndin að opna vefverslun þar sem fólk gæti keypt rafrænar vörur og séð sjálft um framhaldið. Hvort sem það væri að prenta út heima eða senda á prentstofu. 

Sigrún Yrja hefur lokið viðbótarnámi í grafískri hönnun frá The Graphic Design School